Um Þórey

Þórey Sigþórsdóttir leikkona og leikstjóri er sjálfstætt starfandi í leiklistinni ásamt því að sinna stöðu fagstjóra í leiklist og rödd við Kvikmyndaskóla Íslands. Þórey vinnur jöfnum höndum sem skapandi listamaður og kennari í leiklist og rödd. Hún heldur reglulega námskeið og tekur fólk í einkatíma í fyrirlestratækni þar sem hún nýtir reynslu sína úr leiklistinni og sem kennari Nadine George Voice Work til að þjálfa einstaklinga og hópa í leiklist, fyrirlestrartækni og raddbeitingu.

Leikhús og kvikmyndir

Þórey hefur unnið sem leikkona við Borgarleikhúsið, Þjóðleikhúsið og með sjálfstæðum leikhópum.

Af leiksýningum má nefna The Gerpla Drive í leikstjórn Arn-Henrik Blomqvist kynningarstikla , “mammamamma” í leikstjórn Charlotte Böving og einleikinn „Ódó á gjaldbuxum” eftir Ásdísi Thoroddsen Ódóstikla1.

Hún hefur leikið í fjölmörgum útvarpsleikritum um tíðina, síðast má nefna leikritið „Ástand” eftir og í leikstjórn Ásdísar Thoroddsen 2011. Af kvikmyndav

Listræn stjórnun og framleiðsla

Árið 1998 stofnaði Þórey leikfélagið Fljúgandi Fiska sem listrænn stjórnandi þess leikhóps framleiddi hún tvær sýningar ásamt því að leika í þeim

„Hótel Heklu” eftir Anton Helga Jónsson og Lindu Vilhjálmsdóttur, leikstjórn Hlín Agnarsdóttir, og „Medeu” eftir Evrípídes, leikgerð fyrir multi-media sýningu eftir Þóreyju og Ingu Lísu Middleton, leikstjórn Hilmar Oddsson.

Leikstjórn sjónvarp og útvarp

Þórey leikstýrði verkinu Andaðu eftir Duncan Macmillan með þeim Heru Hilmarsdóttur og Þorvaldi Kristjáni Davíðssyni sem var frumsýnt í Iðnó í janúar 2017 og hlaut frábærar undirtektir áhorfenda. Þórey hefur unnið ýmis verkefni fyrir  sjónvarp og kvikmyndir. Hún leikstýrði m.a. „Brotabrot” af íslenskum skáldum – leikin ljóð fyrir sjónvarp RÚV 1999 og „Lífshættu” fyrir Útvarpsleikhús RÚV.

Þórey var þáttastjórnandi „Pílunnar” skemmtiþáttur fyrir börn á RÚV ásamt Eiríki Guðmundssyni 1996-97. Þórey var með tónlistarþátt á útvarpsstöðinni „Stjörnunni” 1987.

Erlent samstarf og verkefnisstjórn

Í kjölfarið af námi sínu í CSSD í London 2012 er Þórey hluti af leikhópnum Head of a Woman sem hefur skapað tvo einþáttunga með aðferðum samsköpunar, sýndir m.a. í leikhúsinu Chelsea Theatre í London , Norðurpólnum Seltjarnarnesi og á leiklistarhátíð í Bratislava.
Þórey tók þátt í að þróa og leika í „The Gerpla Drive” leikstjóri Arn Henrik Blomqvist. „The Gerpla Drive” var leikið á ensku og sýnt í Mariehamn, Reykjavík, Þórshöfn, Hamri, Osló og Stokkhólmi 2013.

Leiksýningin Medea var samstarf milli leikfélagsins Fljúgandi fiska, leikfélags í Nottingham og leiklistarskólans í Tampere. Sýnt í Iðnó Rvík, ICA London og á Off-Tampere leiklistarhátíðinni í Tampere. Leiksýningin Hótel Hekla leikin á sænsku og íslensku, var samstarf milli Svenska Teater Åbo, Åbo, Teater Pero Stokkhólmi og Fljúgandi fiska og var styrkt af Norræna menningarsjóðnum 1998.

Árið 2014 var Þórey ráðin verkefnisstjóri “Ég get sjáðu mig” á vegum leikskólans Laufskála. Þetta er þróunarverkefni Laufskála og markmiðið er innleiða aðferðir leiklistarinnar í starfssemi Laufskála, annars vegar með því að mennta starfsfólk leikskólans til þess og hins vegar með samstarfi við listamenn. Verkefnið er innblásið af starfsemi   „Starcatchers” í Edinborg http://www.starcatchers.org.uk/ og er unnið í samvinnu við framkvæmdatjóra þess Rhonu Mathiesen sem kom til landsins og hélt fyrirlestra í Laufskálum og Listaháskóla Íslands í tengslum við verkefnið. Samstarf er einnig hafið við Helgu Arnalds leikbrúðu og myndlistarkonu. „Ég get sjáðu mig” er styrkt af frá Þróunarsjóði skóla og frístundaráðs Reykjavíkur og Sprotasjóði.

Önnur verkefni

Þórey er viðurkenndur NGT raddþjálfari frá The Voice Studio International London.  Hún kenndi raddþjálfun í fjögur ár við Leiklistardeild Listaháskóla Íslands, einnig hefur hún haldið mörg námskeið fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Þórey hefur sótt margvísleg námskeið til að kynna sér ólíkar aðferðir í þjálfun leikarans, af því má nefna verkefnið Lear Landscapes í samvinnu við Lumparlab, Álandseyjum.

Menntun

2014   MA í Hagnýtri Menningarmiðlun frá Háskóla Íslands
2012    MA í Advanced Theatre Practice, the Central School of Speech and Drama, London, distinction.
2004   Kennsluréttindi Listaháskóli Íslands
2000   Leiðsögumaður Leiðsöguskóli Íslands MK.
1998   Post-Graduate Diploma í Advanced Theatre Practice (Þróaðar vinnuaðferðir í leikhúsi).
The Central School of Speech and Drama, London.
1991    Leikkona Leiklistarskóli Íslands
1986   Stúdent, Náttúrufræðibraut, Menntaskólinn við Sund.
Vinnusmiðjur
2011   Lear Landscapes, Lumparlab, Álandseyjum maí.
http://lumparlab.files.wordpress.com/2011/04/projectdesrip-eng.pdf
2011   National Drama, Swansea, Wales, apríl.
2010    Lear Landscapes, Lumparlab, Álandseyjum september.
2009    Námskeið í Suzuki og Viewpoints, J.Ed Araiza frá SITI Company, NY, Þjóðleikhúsið.
2007    Vinnusmiðja, Suzanne Osten, Þjóðleikhúsið.
1996-2008  Radd- og textavinnu Nadine George, The Voice Studio International London (Shakespeare, Tjekhov, Grikkirnir)  London og Reykjavík.
2006   Trúðanámskeið/grímur, Rafael Bianciotto. FÍL,  Borgarleikhúsið
2003   Aðferðir Commedia dell’arte og Brechts, Didi Hopkins.  Þjóðleikhúsið, fræðsludeild.
1999   Handritsgerð  námskeið, Clare Downs.  Kvikmyndasjóður Íslands.
1996   Butoh námskeið grunnnámsk.  Maureen Fleming.  Augnablik.
1993   Raddnámskeið, Cicely Berry.  Þjóðleikhúsið
1992   Námskeið fyrir unga norræna leikara, ýmsir.  Leiklistarsk. Í Gautaborg.

Leikhús

2019

  • Bréf Halldóru Guðbrandsdóttur – tvær konur 1625 e.Þórey Sigþórsdóttur og Reykjavík Barrokk, Hólahátíð og Hjallakirkja. Leikstjórn Endurflutt á Forntónlistahátíðinni Konur-Skálholt/Seltjarnarneskirkj
  • Dansandi ljóð Gerðar Kristnýjar Þjóðleikhúskjallarinn. Leikstjóri og höf. Edda Þórarinsdóttir

2018

  • Fjallkonan fríð…eða hefur hún hátt e. Helgu Thorberg Þjóðleikhúskjallarinn. Leikstjóri María Sigurðardóttir
  • Bréf Halldóru Guðbrandsdóttur – tvær konur 1625 e.Þórey Sigþórsdóttur og Reykjavík Barrokk, Hólahátíð og Hjallakirkja. Leikstjórn

2017

  • Andaðu e Duncan Macmillan leikstjórn. Leikfél.Fljúgandi fiskar Iðnó. Janúar -Tilfnefning til Grímunnar fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki.
  • Uppspuni frá rótum e eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Leikstjórn. Leikfél. Selfoss febrúar ‘17
  • Human Safari verk í vinnslu edition Fljúgandi fiskar og AZ prod. Cosmonauti Festival 12th, Toscany, Italíu.
  • Human Safari verk í vinnslu edition Fljúgandi fiskar og AZ prod. Residency Kolsstaðir.

2016

Andaðu e Duncan Macmillan leiklestur Leikfél.Fljúgandi fiskar Iðnó. leikstjórn.

2015

Sjáumst eftir eina, tvær… e. Grétu Kristínu Ómarsdóttur Sviðshöfundabraut LHÍ

2014

Fyrirlestur Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, leikstjórn Ásdís Skúladóttir , Iðnó

Lífshætta útvarpsleikrit, leikgerð og leikstjórn Útvarpsleikhús Rás 1

Gæðakonur, sviðsett ljóð Steinunnar Sig,leikstjórn Hlín Agnarsdóttir, Iðnó

Lífshætta, e Þórey Sigþórsdóttur, Útvarpsleikhús Rás 1 RÚV.

2013

The Gerpla Drive, e Arn Henrik Blomquist, leikstjórn AHB Teater Kompani Nord

Leikferð um Norðurlöndin apríl-maí.

2012

Grey Matters: A Play for Six Brains and Curricula Vitae   Head of a Woman, Norðurpóllinn, Seltjarnarnesi og Chelsea Theatre, London.

Grey Matters: A Play for Six Brains  Head of a Woman, SHOWTiME festival at Rich Mix, London, the Slovak National Theatre as part of the Istropolitana Projekt 2012 Bratislava.

2011 Bugsy Malone Leikstjórn Unglingadeild Austurbæjarskóla

2009-10

Einleikurinn Ódó á gjaldbuxum eftir Ásdísi Thoroddsen.

Gjóla, Hafnarfjarðarleikhúsið, Act Alone, Tjarnarbíó.

2008

mammamamma e Maríu Ellingsen, Charlotte Böving og leikhópinn Opið Út. Opið út, Hafnarfjarðarleikhúsið, Leiklistarráð.

2003

Vera – Við munum berjast með ástina að vopni. e Firenza Guidi, Lab Loki, Listasafn Íslands.

2002

Leikferð m. Medeu, Djanogly Theatre og ICA, Englandi júlí 2002 og Alþjóðlega leiklistarhátíðin OFF-Tampere, Tampere, Finnlandi, ágúst 2002.

2001 •Leikstjórn og leikgerð að handriti að söngleik uppúr Víetnömsku ævintýri fyrir leikhóp barna á vegum Nýbúamiðstöðvarinnar í Reykjavík. Frums. mai ’02.

2000-2001

Medea e.Evrípídes, multi-media, leikgerð f.tvo leikara e. Þóreyju Sigþórsdóttur, Ingu Lísu Middleton og Hilmar Oddsson. Leikf. Fljúgandi Fiskar, Leikfél. Íslands, Þjóðleikhúsið, Stöð 2, Rvík, menn.borg Evrópu 2000, Menningaráætlun Evrópusambandsins-Culture 2000.

1999-2000 •Leikstjórn og kennsla með óperusöngnemum í Tónlistarskóla Reykjavíkur

1999 •Höfundur og leikstjóri sýningarinnar Kraftar m Ólöfu Ingólfsdóttur. Leikhópurinn Tröllabörn, ferð á Alþjóðlega leiklistarhátíð barna í Toulouse.

1998-1999

Hótel Hekla e. Anton Helga Jónsson og Lindu Vilhjálmsdóttur, Leikf.Fljúgandi Fiskar, Kaffileikhúsið.

Leikferðalag Hótel Hekla (á sænsku) Abo’s Svenska Teater, Abo, Teater Pero, Stokkhólmi.

Medea e. Evrípídes Upptökur og undirbúningur. Leikf.Fljúgandi Fiskar.

1997

Hótel Hekla, (á sænsku) í Norræna Húsinu, Leikf.Fljúgandi Fiskar

Leikstjórn á gamanleikritinu NÖRD eftir Larry Shue. Leikflokkurinn Sunnan Skarðsheiðar.

1995-1996

Skírnismál úr Eddukvæðum, Ásatrúarfélagið og Stúdentaleikhúsið í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Läppstift och lava, (Dagskrá á sænsku: einleikurinn Skilaboð til Dimmu eftir Elísabetu Jökulsdóttur og brotabrot…af íslenskum skáldkonum; 15 ljóðmyndir á tjaldi.) Norræna húsið, Reykjavík, Teater Pero Stokkhólmi, Menningarhátíð Norræna Húsið, Álandseyjum. Abo’s Svenska Teater, Abo.

1994-1995

Leynimelur 13 e.Þrídrang.Leikstj.Ásdís Skúladóttir. Leikfélag Rvíkur, Borgarleikhúsið

Skilaboð til Dimmu e.Elísabetu Jökulsdóttur. Kaffileikhúsið og farandsýning.

1993-1994

Þrettánda krossferðin e.Odd Björnsson, Þjóðleikhúsið.

Leikferð á leiklistarhátíð í Bonn með Hafið e.Ólaf Hauk Símonarson, Bonner Biennale.

Leikferð Skilaboð til Dimmu e. E.Jökulsd.   Nordisk Forum Turku,Finnlandi.

1992-1993

Hafið e. Ólaf Hauk Símonarson. Þjóðleikhúsið.

Leikferð um Ísland með Hafið

Kjaftagangur e. Neill Simon. Þjóðleikhúsið.

1991-1992

Ljón í síðbuxum e. Björn Th.Björnsson. Borgarleikhúsið.

Þrúgur reiðinnar e. John Steinbeck

Kvikmyndir og sjónvarp

2020 • Svar við bréfi Helgu, Hulda, leikstjórn Ása Helga Hjörleifsdóttir, Kolkustaðir 2020

2019 • Ráðherrann leikstjórn Nanna Kristín Magnúsdóttir og Arnór Pálmi Arnórsson RÚV/SagaFilm

2019 • Mortal Engines leikstjórn Christian Rivers,

2019 • Tveir fiskar, leikstjórn Ingibjörg Sara, KVÍ útskriftarmynd

2018 • Svartþröstur, leikstjórn Lovísa Lára KVÍ stuttmynd,

2011 • Tími nornarinnar, sjónvarpsþættir. Leikstj. Friðrik Þór Friðriksson

2010 • Behind Stars, stuttmynd. Leikstj. Óskar Örn Arnarson.

2010 • Svefnrof, stuttmynd. Leikstj. Ragnar Snorrason.

2010 • Vaxandi tungl, kvikmynd. Leikstj. Lýður Árnason, Í einni sæng ehf.

2010 • Kennitölur stuttmynd. Leikstj. Hallur Örn Árnason

2006 •Venjulegur dagur, stuttmynd. Leikstj. Hilmar Oddsson

2006 •Veðramót, kvikmynd. Leikstj. Guðný Halldórsdóttir Umbi ehf.

2002 •Kaldaljós, kvikmynd. Leikstj. Hilmar Oddsson, Kaldaljós ehf.

1998 •Sporlaust, kvikmynd. Leikstj. Hilmar Oddsson, Tónabíó hf.

1998 •Sporlaust, kvikmynd. Leikstj. Hilmar Oddsson, Tónabíó hf. skrifta

1998-’99 •Leikstjórn, Ljóð vikunnar (leikin ljóð) , RÚV. Kvikmyndafélagið Nýja Bíó hf.

1998-’99 •Leikstjórn, brotabrot… af íslenskum skáldkonum. Kvikmyndafélagið Nýja Bíó hf.

1996-’97 •Umsjón með spurninga og þrautaþætti fyrir börn, Pílu. RÚV ´96-´97.

1995 •Tár úr Steini, kvikmynd. Leikstj. Hilmar Oddsson, Tónabíó. Framkvæmdastjórn

1995 •Agnes, kvikmynd. Leikstj. Egill Eðvarðsson, Pegasus.

1995 •Í draumi sérhvers manns, stuttmynd. Leikstj. Inga Lísa Middleton, ILM-Film.

1994 •Hvíti dauðinn, sjónvarpsmynd. Leikstj. Einar Heimisson, RÚV.

1994 •Ási, sjónvarpsmynd f.börn. Leikstj. Sigurbjörn Aðalsteinsson, RÚV.

1994 •Hafið e. Ólaf Hauk Símonarson, sjónvarpsmynd eftir leikritinu. Leikstj. Þórhallur Sigurðsson, stjórn upptöku Egill Eðvarðsson. Saga Film.

1994 •Nifl, stuttmynd. Leikstj. Þór Elís Pálsson, Niflungar.

1992 •Malbik, sjónv.kvikm. Leikstj. Arn Henrik Blomquist finnsk/ísl. mynd, RÚV.

1992 •Jól á sjúkrahúsi, sjónvarpsmynd f. börn. Leikstj. Ari Kristinsson, RÚV.

1991 •Sjóarinn, spákonan, blómasalinn, skóarinn, málarinn og Sveinn, sjónv.m.

Leikstj. Hilmar Oddsson. RÚV.

Kennsla

2017-2020 •Fagstjóri í leik og rödd við Kvikmyndaskóla Íslands

2016-2020 •Kennsla í leik og rödd við Kvikmyndaskóla Íslands,

2020 • Online námskeið, “Ég tala þess vegna er ég”, Discover your sparkle and shine on video now”

2002-2020 •Kennsla við Listkennsludeild og Leiklistardeild Listaháskóla Íslands BA og MA stig

2018-2019 •Kennsla við Menntavísindasvið HÍ

2002-2019• Námskeið í raddbeitingu, og fyrirlestratækni við HÍ, Leiðsöguskóli Íslands, Endurmenntun HÍ og hjá fyrirtækjum t.d. Alþingi, Stöð 2, Landsbókasafni, Síminn Tollstjórinn í Rvk, o.fl.

2013   •Kennsla á námskeiði ATP, Central School of Speech and Drama, London með Head of a Woman

2012   •Kennsla á námskeiði Gjörningalist, Módel 3, ásamt Söru Björnsdóttur Myndlistaskólinn í Rvík.

2006-2011 •Leiklistarkennsla í Austurbæjarskóla full staða sem leiklistarkennari

2002-2006 •Raddkennari í fullri stöðu v.Leiklistardeild LHÍ

2000-’03 •Kennsla á raddbeitingarnámskeiðum Opni Listaháskólinn.

1996-’99 •Leiðbeinandi í Gagn og Gaman, listasmiðju barna í Gerðubergi, ´96 og ’99.

1991-’00 •Leikstjórn og leiklistarkennsla fyrir börn og unglinga í Kramhúsinu og í grunnskólum

Hljóðbækur og útvarpsleikhús

  • Storytel 4 titlar
  • Hljóðbókasafn Íslands 50 titlar
  • Lífshætta leikgerð og leikstjórn RÚV og HÍ 2014 frumflutt í Bíó Paradís og RÚV sama ár
  • Fjöldi hlutverka í Útvarpsleikhúsi RÚV

Sjónvarp

2011 • Tími nornarinnar, sjónvarpsþættir.  Leikstj. Friðrik Þór Friðriksson
2010 • Behind Stars, stuttmynd.  Leikstj. Óskar Örn Arnarson.
2010 • Kennitölur  stuttmynd.  Leikstj. Hallur Örn Árnason
1998-’99  •Ljóð vikunnar, RÚV‘98-’99.  Leikstj.Þórey Sigþórsdóttir og Kristín Bogadóttir, kvikmyndafélagið Nýja Bíó hf.
1994  •Hvíti dauðinn, sjónvarpsmynd.  Leikstj. Einar Heimisson, RÚV.
1994  •Ási, sjónvarpsmynd f.börn.  Leikstj. Sigurbjörn Aðalsteinsson, RÚV.
1994  •Hafið e. Ólaf Hauk Símonarson, sjónvarpsmynd eftir leikritinu.  Leikstj. Þórhallur Sigurðsson, stjórn upptöku Egill Eðvarðsson.  Saga Film.
1992  •Malbik, sjónv.kvikm.  Leikstj. Arn Henrik Blomquist finnsk/ísl. mynd, RÚV.
1992  •Jól á sjúkrahúsi, sjónvarpsmynd f. börn.  Leikstj. Ari Kristinsson, RÚV.
1991  •Sjóarinn, spákonan, blómasalinn, skóarinn, málarinn og Sveinn, sjónv.m.
Leikstj. Hilmar Oddsson.  RÚV.

Félagsstörf

Í stjórn FLÍSS (félag um leiklist í skólastarfi)
Var í skipulagsnefnd fyrir Drama Boreale 2012 (norrænt net leiklistarkennara, fræðimanna, listamanna og vísindamanna sem hafa áhuga á að efla leiklist og leiklist í kennslu á öllum skólastigum)
Félagi í FÍL (félag íslenskra leikara)
Félagi í IDEA (international drama education association)
Félagi í ND (national drama)

Pin It on Pinterest

Share This